- Land: Kenýa
- Tegund: Arabica
- Yrki: SL 28
- Vinnsla: Þvegið og sólþurrkað
- Bragðtónar: Hunang, sítróna og brómber
- Ræktunarhæð: 1750 - 1900m
Úr hlíðunum umhverfis Kenýafjall, næsthæsta tind Afríku, kemur úrvalskaffi, ræktað í einstaklega frjósömum eldfjallajarðvegi í allt að 1900 m hæð yfir sjávarmáli.
Kenya Mount Selection er sólþurrkað, margslungið kaffi með bragðtónum af hunangi, sítrónu og brómberjum. Það er framleitt í samstarfi við NGK BLOOM, samtök sem hjálpa smákaffibændum að hefja sig upp úr fátækt með arðsömum rekstri búgarða sinna, og styðja um leið við sjálfbæra ræktun, gagnsæi og rekjanleika.