Bragðnótur: Dökkt súkkulaði, Hnetur og bl´óðappelsína
Þetta er espresso-blandan sem við notum á öllum okkar kaffihúsum. Einstaklega mjúkt og gott kaffi úr sérvöldum kaffibaunum, sem hentar vel í baunavélar og uppáhellingu.
Espresso 101 sameinar sætleika baunanna frá Suður-Ameríku, mýkt og fyllingu frá Afríku og þéttleika frá Mið-Ameríku í fullkomnu jafnvægi.
Espresso 101 hentar einstaklega vel í alla mjólkurdrykki hvenær sem þú vilt skapa mjúka og ómótstæðilega kaffihúsadrykki heima í eldhúsi.
Kaffibaunir ristaðar í umhverfisvænni kaffibrennslu
Við ristum allt okkar kaffi á umhverfisvænan hátt með metan gasi en metan gas verður til úr lífrænum heimilisúrgangi. Við erum því hægt og rólega að færa okkur yfir í hringrásarhagkerfið en með þessari aðgerð núllast út nánast öll bein kolefnislosun á vegum Te & Kaffi á Íslandi.