Fara í efni

Colombia La Pradera 250gr Baunir

Verð með VSK
2.995 kr.

Dýrindis kaffi með sætum keim frá kaffibændum Kólumbíu. Þroskuð kaffiberin eru handtínd, sólþurrkuð og gerjuð á náttúrulegan hátt svo útkoman verður hreint unaðsleg.

La Pradera er lífrænt vottað býli í fjölskyldueigu, staðsett í Aratoca, Santander héraðinu í Kólumbíu. Frá 1970 hefur verið stunduð þar kaffiræktun og fjórar kynslóðir Daza fjölskyldunnar tekið beinan þátt í framleiðsluferlinu. Alúð og ástúð er lögð í hvert smáatriði með það fyrir augum að skapa einstaka bragðupplifun.

Verð með VSK
2.995 kr.