Italian Roast er dekksta blandan frá Te & Kaffi, bragðmikil, þétt og langt eftirbragð. Þetta kaffi er eins og ítalir vilja hafa það, sterkt og bragðmikið.
Lífrænar umbúðir og umhverfisvæn kaffibrennsla
Umbúðirnar okkar eru lífrænar og flokkast í brúnu tunnuna. Ekki er mælt með að setja þær í heimamoltu þar sem ferlið tekur lengri tíma en iðnarðarmolta. Við ristum allt okkar kaffi á umhverfisvænan hátt með metangasi en metangas verður til úr lífrænum heimilisúrgangi.