Colombia Santos er meðalristuð kaffiblanda. Sætleiki og mýkt frá Brasilíu ásamt úrvals Kólumbíukaffi gerir þessa blöndu sérstaklega bragðgóða.Suður-Ameríka er þekkt fyrir kaffiræktun og þar er framleitt mikið af gæðakaffi. Há fjöll, frumskógar og einstakt loftslag mynda góð skilyrði fyrir kaffiræktun í heimsálfunni.
Lífrænar umbúðir og umhverfisvæn kaffibrennsla
Umbúðirnar okkar eru lífrænar og flokkast í brúnu tunnuna. Ekki er mælt með að setja þær í heimamoltu þar sem ferlið tekur lengri tíma en iðnarðarmolta. Við ristum allt okkar kaffi á umhverfisvænan hátt með metangasi en metangas verður til úr lífrænum heimilisúrgangi.