Stokkrósin er sögð vera kröftug lækninga - og heilsujurt. Bragðið minnir á trönuber og er mjög frískandi og svalandi. Gott hvort sem það er drukkið heitt eða kalt.
Einnig getur þú komið með teboxið og keypt áfyllingu á kaffihúsinu okkar á Laugavegi 27 og í vöruhúsinu okkar að Staphrauni 11.
Bruggunarleiðbeiningar
100°C heitt vatn.
5-10 mínútur í vatninu.
4- 5 tsk í einn lítra.
Íste: Lagið te samkvæmt leiðbeiningum. Gott er að sæta teið á meðan það er heitt með hunangi eða annarri sætu eftir smekk. Kælið í ísskáp í nokkrar klukkustundir. Frábært með klökum og sneið af sítrónu.