Fara í efni

Espresso Koffínlaust 250 gr

Verð með VSK
2.195 kr.

Koffínlaust espresso er bragðmikið og ljúffengt ekta espresso með léttri ávaxtasýrni og krydduðum ljúffengum keim.

Við framleiðsluna eru notaðar nýjustu verkunaraðferðir þar sem koffínið er fjarlægt með náttúrulegum leiðum. Notuð er ný tækni sem kallast „Swiss Water“ og felur í sér að baunirnar eru látnar liggja í bleyti í sérstakri lausn sem inniheldur engin skaðleg efni, áður en þær eru þurrkaðar aftur og tilbúnar til brennslu.

Þannig er þér gert kleift að njóta hins fullkomna kaffibolla – án koffíns.

 

Kaffibaunir ristaðar í umhverfisvænni kaffibrennslu

Við ristum allt okkar kaffi á umhverfisvænan hátt með metangasi en metangas verður til úr lífrænum heimilisúrgangi. Við erum því hægt og rólega að færa okkur yfir í hringrásarhagkerfið en með þessari aðgerð núllast út nánast öll bein kolefnislosun á vegum Te & Kaffi á Íslandi.

 

 
Verð með VSK
2.195 kr.