Espresso Hússins er meðalristuð espresso-blanda. Í þessari kaffiblöndu má greina lifandi undirtóna frá öllu kaffiræktunarbeltinu og við teljum að við höfum náð að skapa einstaklega góða espresso-blöndu, sem hentar jafnt sem úrvals góður espresso en sömuleiðis hæfir hún mjög vel í kaffimjólkurdrykki á borð við cappuccino.
Lífrænar umbúðir og umhverfisvæn kaffibrennsla
Umbúðirnar okkar eru lífrænar og flokkast í brúnu tunnuna. Ekki er mælt með að setja þær í heimamoltu þar sem ferlið tekur lengri tíma en iðnarðarmolta. Við ristum allt okkar kaffi á umhverfisvænan hátt með metangasi en metangas verður til úr lífrænum heimilisúrgangi.