Þetta er espresso-blandan sem við notum á öllum okkar kaffihúsum. Einstaklega mjúkt og gott kaffi úr sérvöldum kaffibaunum, sem hentar líka í baunavélar og uppáhellingu.
Espresso 101 sameinar sætleika baunanna frá Suður-Ameríku, mýkt og fyllingu frá Afríku og þéttleika frá Mið-Ameríku í fullkomnu jafvægi.
Espresso 101 hentar einstaklega vel í alla mjólkurdrykki hvenær sem þú vilt skapa mjúka og ómótstæðilega kaffihúsadrykki heima í eldhúsi.
Lífrænar umbúðir og umhverfisvæn kaffibrennsla
Umbúðirnar okkar eru lífrænar og flokkast í brúnu tunnuna. Ekki er mælt með að setja þær í heimamoltu þar sem ferlið tekur lengri tíma en iðnarðarmolta. Við ristum allt okkar kaffi á umhverfisvænan hátt með metangasi en metangas verður til úr lífrænum heimilisúrgangi.